Hópurinn skoðaði nýju Þjóðgarðsmiðstöðina og fundaði þar. Ljósm. aðsend.

Komu saman og stilltu strengi fyrir Góðar fréttir af Snæfellsnesi

Í morgun kom hópurinn saman sem kennir sig við Góðar fréttir af Snæfellsnesi. Nýja Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi var skoðuð en um leið stilltir saman strengir fyrir sumarið. „Við erum að taka forskot á sæluna með að upplifa þetta fallega hús og eins kemur alltaf eitthvað skemmtilegt fram á þessum fundum okkar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir verkefnastjóri í samtali við Skessuhorn.

Komu saman og stilltu strengi fyrir Góðar fréttir af Snæfellsnesi - Skessuhorn