
Á svæðinu í Flóahverfinu sem Askja er nú búin að tryggja sér. F.v. Einar Brandsson bæjarfulltrúi, Jónas Kári Eiríksson forstöðumaður vörustýringar Öskju, Sigurður Páll Jónsson sviðsstjóri Skipulags- og umhverfissviðs, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Jón Trausti Ólafsson forstjóri Öskju, Ragnar Baldvin Sæmundsson bæjarfulltrúi, Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri og Sigrún Ágústa Helgudóttir verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað. og Ljósm. Akraneskaupstaður/ Daníel Þór.
Bílaumboðið Askja fyrirhugar starfsemi á Akranesi
Akraneskaupstaður og Bílaumboðið Askja hafa undirritað samning um lóðir í Grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Askja sér aðgang að lóðum sem eru yfir 14 þúsund fermetrar að flatarmáli og getur nú hannað húsnæði í takt við þá þjónustustarfsemi sem fyrirhuguð er á vegum fyrirtækisins á svæðinu. Áætluð starfsemi á lóðunum verður meðal annars sala- og þjónusta á fólks- og atvinnubifreiðum. Í húsnæðinu verða sýningarsalir, þjónustubygging fyrir bifreiðar ásamt almennri þjónustu við íbúa og fyrirtæki á Vesturlandi.