Fréttir

true

Sigurganga Skallagríms á enda

Skallagrímur og Hamar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leik hafði Skallagrímur unnið sjö leiki í röð í deildinni á meðan Hamar var á góðum stað í öðru sæti deildarinnar. Jafnt var á með liðunum fyrri hluta fyrsta leikhluta og staðan 13:14 eftir rúman…Lesa meira

true

Stefna að þriggja kvölda tvímenningi

Ekkert lát er á kröftugu starfi á vegum Bridgefélags Borgarfjarðar. Vikulega á mánudagskvöldum er komið saman í Logalandi í Reykholtsdal kl. 20. Í gærkvöldi var spilaður eins kvölds tvímenningur. Skólastjóraparið Sveinn Hallgrímsson og Flemming Jessen höfðu yfirburðasigur; 60,9% skor. Í öðru sæti voru Ingimundur og Anna Heiða með 54,7% og þriðju voru góðbændurnir Guðmundur Kristinsson…Lesa meira

true

Andlát – Jóhannes Nordal

Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, er látinn 98 ára að aldri. Jóhannes lauk doktorsnámi frá London School of Economics árið 1953 og var seðlabankastjóri frá stofnun bankans árið 1961 til 1993. Hann var heiðursdoktor við bæði félagsvísindadeild og viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og er af mörgum talinn einn mesti áhrifavaldur um íslensk efnahagsmál. Hann var…Lesa meira

true

Viðgerðum Baska á skreytingum í Innri-Hólmskirkju lokið

Listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, hefur undanfarnar vikur verið að vinna innan dyra í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit. Eins og greint var frá í Skessuhorni um miðjan febrúar var ætlunin að gera við skreytingu á innanverðum gafli kirkjunnar, fylla upp í handriðið, lagfæra púltið og altarisborðið. Þá var ætlunin að taka loftið í kirkjunni allt í…Lesa meira

true

Fyrirskipar hert eftirlit eftir grásleppuveiðum

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur beint tilmælum til Fiskistofu um að átak verði gert í eftirliti með grásleppuveiðum á komandi vertíð en veiðar á grásleppu hefjast eftir um mánuð. „Í átakinu verður áhersla lögð á bætta skráningu meðafla sem er mikilvæg fyrir vottun útfluttra íslenskra sjávarfurða. Áður hefur verið farið í sérstakt eftirlit með veiðunum þar…Lesa meira

true

Bangsar komnir um borð í alla sjúkrabíla HVE á Akranesi

Akranesdeild Rauða krossins afhenti í dag Þórði Guðnasyni, yfirmanni sjúkraflutninga hjá HVE, prjónaða bangsa til að gefa yngstu farþegum sjúkrabílanna. Bangsarnir eru prjónaðir af Prjónahópi Akranesdeildar sem er hópur 10 – 20 kvenna sem kemur saman á mánudögum klukkan 13 í húsnæði deildarinnar að Kirkjubraut 12. Konurnar sjá um búðina, prjóna sokka og vettlinga fyrir…Lesa meira

true

Lífsnámsvika byrjuð í Menntaskóla Borgarfjarðar

Starfsfólk og nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar leggja hefðbundið nám til hliðar í þessari viku og koma nemendur til með að tileinka sér nýja hluti. Í dag hófst Lífsnámsvika MB, þar sem að þessu sinni er lögð áherslu á sjálfbærni. „Undanfarin tvö ár hefur mikil þróunarvinna verið í gangi í MB og er m.a. búið að innleiða…Lesa meira

true

Sunnlendingar eru býsna góðir í tippinu

Tippari frá Vestmannaeyjum var með 13 rétta á enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fær í sinn hlut rúmar 900.000 krónur. Tipparinn, sem styður ÍBV, tippaði á opinn seðil þar sem hann þrítryggði fimm leiki og tvítryggði tvo leiki og kostaði seðillinn 12.636 krónur. Skaftfellingur frá Höfn í Hornafirði var svo með 13 rétta á Sunnudagsseðlinum…Lesa meira

true

Skinkuhorn – James Einar Becker

James Einar Becker er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Skinkuhorns. Hann er markaðsstjóri Háskólans á Bifröst og bílaþáttaframleiðandi James Einar Becker ólst upp í Biskupstungum á Suðurlandi á tvítyngdu heimili en móðir hans er íslensk og faðir hans írskur. Bernskuskónum sleit hann m.a. í gróðurhúsum foreldra sinna í Laugarási þar sem ræktaðar eru gúrkur. Gúrkuræktin höfðaði þó…Lesa meira

true

Samningur undirritaður um framkvæmdir við Grundaskóla

Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Sjamma ehf. um framkvæmdir við C-álmu Grundaskóla á Akranesi. Um er að ræða breytingar og endurbætur á elstu álmu skólans. Byggingin verður stækkuð þannig að þriðja hæð fær að hluta til hærra þak sem nær gafla á milli. Að vestanverðu verður byggt nýtt anddyri ásamt því að…Lesa meira