
Ævisaga Jóhannesar; Lifað með öldinni, kom út í nóvember sl.
Andlát – Jóhannes Nordal
Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, er látinn 98 ára að aldri. Jóhannes lauk doktorsnámi frá London School of Economics árið 1953 og var seðlabankastjóri frá stofnun bankans árið 1961 til 1993. Hann var heiðursdoktor við bæði félagsvísindadeild og viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og er af mörgum talinn einn mesti áhrifavaldur um íslensk efnahagsmál. Hann var stjórnarformaður Landsvirkjunar frá stofnun 1965 til 1995 og stýrði því uppbyggingu íslensks raforkuiðnaðar. Þá var hann um árabil ritstjóri Fjármálatíðinda. Eiginkona Jóhannesar var Dóra Guðjónsdóttir Nordal en hún lést árið 2017. Þau eignuðust sex börn. Æviminningar Jóhannesar Nordal, Lifað með öldinni, komu út í lok síðasta árs.