
Baski stoltur að verki loknu. Ljósm. aðsend
Viðgerðum Baska á skreytingum í Innri-Hólmskirkju lokið
Listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, hefur undanfarnar vikur verið að vinna innan dyra í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit. Eins og greint var frá í Skessuhorni um miðjan febrúar var ætlunin að gera við skreytingu á innanverðum gafli kirkjunnar, fylla upp í handriðið, lagfæra púltið og altarisborðið. Þá var ætlunin að taka loftið í kirkjunni allt í gegn og lauk Baski viðgerðum í kirkjunni um helgina.