Svona mun Grundaskóli líta út í lok árs 2024.

Samningur undirritaður um framkvæmdir við Grundaskóla

Síðastliðinn fimmtudag var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og Sjamma ehf. um framkvæmdir við C-álmu Grundaskóla á Akranesi. Um er að ræða breytingar og endurbætur á elstu álmu skólans. Byggingin verður stækkuð þannig að þriðja hæð fær að hluta til hærra þak sem nær gafla á milli. Að vestanverðu verður byggt nýtt anddyri ásamt því að byggt verður yfir eldri útistiga. Á suðurhlið verður anddyri stækkað og að norðanverðu verður byggt nýtt anddyri. Innandyra verður byggingin endurnýjuð að miklu leyti, tilfærslur verða gerðar á rýmum, salerniskjarnar verða færðir til og almennt lögð áhersla á björt rými með góðri hljóðvist og góðu aðgengi. Þá verða raf-, pípu- og loftræstikerfi endurnýjuð.

Samningur undirritaður um framkvæmdir við Grundaskóla - Skessuhorn