Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um eitt prósent á fimmtán mánuðum

Á fimmtán mánaða tímabili, frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 174, en það jafngildir 1% fjölgun. Hlutfallslega fjölgaði íbúum í Skorradalshreppi mest, eða um þrjá íbúa, en í fjölda talið var langmest fjölgun í Borgarbyggð, eða um 5,2% sem skýrist af að 103 fleiri búa þar en í árslok 2022. Íbúum í Sveitarfélaginu Stykkishólmi fækkaði á tímabilinu um sjö, en það var eina sveitarfélagið sem fækkun mældist. Íbúar á Vesturlandi eru nú 17.660 talsins. Akranes er áfram fjölmennast sveitarfélaganna með 8.035 íbúa en í Borgarbyggð býr nú 4.171.

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um eitt prósent á fimmtán mánuðum - Skessuhorn