Byggðakjarninn á Hvanneyri var einn sá fyrsti á Vesturlandi til að fá ljósleiðara, eða árið 2018. Ljósm. úr safni/mm

Kostnaður við ljósleiðaratengingu misjafn eftir búsetu – FRÉTTASKÝRING

Á Vesturlandi er nú unnið að því að leggja ljósleiðara í flestum þéttbýliskjörnum en því verkefni fer senn að ljúka. Til að mynda mun tenging ljósleiðara í Borgarnesi klárast í vor og í Grundarfirði á næsta ári. Í byggðakjörnum í Snæfellsbæ er þó talsvert í land að tengingum ljúki en 5G sendir var settur upp í Ólafsvík á síðasta ári. Verkefnið Ísland ljóstengt hefur verið unnið á landsvísu síðan árið 2016 í samráði ríkis og sveitarfélaga, en í verkefninu styrkir ríkið ljósleiðaravæðingu dreifbýlisins á þeim stöðum sem dreifbýli er ekki skilgreint sem samkeppnissvæði. Styrkir fást þess vegna ekki til að tengja ljósleiðara í þéttbýli sem er skilgreint sem samkeppnissvæði.

Kostnaður við ljósleiðaratengingu misjafn eftir búsetu - FRÉTTASKÝRING - Skessuhorn