
Mirco Minicucci er skiptinemi í Auðarskóla í Búðardal. Ljósm. gbþ
Vill fá sem mest út úr skiptinemaárinu
Mirco Minicucci er ítalskur skiptinemi sem hefur í vetur dvalið hjá fjölskyldu í Búðardal. Hann er uppalinn í úthverfi Rómar, er á sautjánda ári og gengur nú í Auðarskóla í Búðardal. Mirco er félagslyndur, hefur náð vel til skólasystkina sinna og er duglegur að taka þátt í hverju því sem í boði er í samfélaginu. Hann setti sér það markmið fyrir dvölina að segja já, prófa nýja hluti og njóta alls þess sem skiptinemareynslan hefur upp á að bjóða. Blaðamaður hitti Mirco í Auðarskóla á Öskudaginn og fékk að heyra um dvöl hans í Búðardal og ákvörðun hans um að skrá sig í skiptinám til Íslands.