Fréttir

true

Vatnsveituholur endurnýjaðar á Seleyri

Neysluvatn hefur síðustu árin verið leitt úr Grábrókarhrauni og Seleyri til Borgarness og nærsveita, en á þeim tíma hafa af og til komið upp talsverð gruggvandamál með vatnsveitu Grábrókar. Í sumar voru boraðar tvær vinnsluholur á Seleyri sem koma munu í stað núverandi holna á svæðinu en eru þær komnar til ára sinna. Talið er…Lesa meira

true

Sumaropnunartími í Guðlaugu framlengdur

Bæjaryfirvöld á Akranesi ákváðu fyrir síðustu mánaðamót að skerða til muna opnunartíma í baðlauginni Guðlaugu við Langasand. Átti hún þá að vera opin dagpart tvo virka daga í viku og um helgar. Þessi ákvörðun mætti harðri gagnrýni íbúa á Akranesi. Þá voru einnig fjölmargir ferðamenn sem gripu í tómt dagana sem laugin var lokuð, en…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi næsta þriðjudag

Blóðbankabíllinn verður á ferðinni á Akranesi í næstu viku, í fyrsta skipti eftir tveggja og hálfs árs stopp vegna Covid-19. Bíllinn verður við Stillholt á Akranesi þriðjudaginn 13. september frá kl. 10 til 17. Þangað er fólk hvatt til að mæta megi það gefa blóð.Lesa meira

true

Sparkvöllurinn sópaður í Stykkishólmi

Unnið er nú að því að bæta aðstöðu knattspyrnuiðkenda á sparkvellinum við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Lítill götusópur hefur farið yfir völlinn í þeim tilgangi að sópa upp kurlinu sem hefur reynst mörgum þreytandi. Með því að sópa völlinn og þrífa hann er vonast til þess að losna við eða draga úr þeirri svertu sem berst…Lesa meira

true

Yfirdýralæknir og forstjóri MAST mæta á nefndarfund í Borgarnesi

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar kemur nú klukkan 13 í dag saman til aukafundar. Aðeins eitt mál er á dagskrá, en það snýr að dýravelferðarmálum. Sigrún Ólafsdóttir bóndi og formaður nefndarinnar segir í samtali við Skessuhorn að um aukafund í nefndinni sé að ræða en ákveðið hafi verið að boða til hans í ljósi umræðna um…Lesa meira

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar varð 55 ára í gær

Tónlistarskóli Borgarfjarðar tók til starfa 7. september árið 1967 og átti því stórafmæli í gær. Til stendur að hafa opinn dag í skólanum þriðjudaginn 8. nóvember næstkomandi og halda upp á afmælið um leið. Fyrsta veturinn sem skólinn starfaði stunduðu 39 nemendur nám við skólann og voru kennarar fjórir auk skólastjóra. Nemendum hefur fjölgað og…Lesa meira

true

Nýtt deiliskipulag í ferli fyrir Húsafell 1 og Bæjargil

Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Húsafell 1 og Bæjargil í Hálsasveit. Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna til auglýsingar. Deiliskipulagið tekur til ríflega 5,2 ha viðskipta- og þjónustusvæðis á gömlu bæjartorfunni í Húsafelli. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir gistihúsi og sex spildum fyrir…Lesa meira

true

Læknalaust er í Ólafsvík og í Grundarfirði í dag

„Þetta eru alveg einstakar aðstæður. Ég held að ég geti alveg fullyrt það að þetta hafi aldrei gerst áður,” segir Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE aðspurð um að nú er læknislaust á sama tíma í Ólafsvík og Grundarfirði. Um síðustu helgi urðu forföll á þeim læknum sem áttu að vera þessa vikuna í Ólafsvík og…Lesa meira

true

Stærsti hópur skiptinema á Hvanneyri hingað til

Haustönnin í Landbúnaðarháskóla Íslands fer vel af stað og þar svífur alþjóðlegur andi yfir vötnum. Í haust hóf stærsti hópur skiptinema hingað til, nám við skólann, en alls eru þeir 21 talsins frá átta Evrópulöndum og búa þeir allir á Hvanneyri. Síðasta dag ágústmánaðar var blásið til alþjóðakaffis í aðalbyggingu skólans á Hvanneyri sem kallast…Lesa meira

true

H veitingar áfram með Skemmuna á Hvanneyri

Í tilkynningu frá sóknarnefnd Hvanneyrarsóknar til íbúa Hvanneyrar á FB kemur fram að hún hefur framlengt samning við H Veitingar til 1. september 2023 um leigu á Skemmunni á staðnum sem kaffihúsi. H Veitingar tóku til starfa í ágúst 2021 og eru í eigu Hendriks Hermannssonar. Hugmynd Hendriks er að vera með starfsemi í Skemmunni…Lesa meira