Gamla bæjartorfan á Hvanneyri. Skemman sést neðst til hægri. Vinstra megin við hana og í forgrunni er Leikfimihúsið/Íþróttahöllin, frá árinu 1911. Á bak við það hús sést Skólastjórahúsð sem reist var árið 1920 og lengst til vinstri er Gamli skóli, byggður árið 1910. Fjær sést í turn Hvanneyrarkirkju sem er frá árinu 1905. Ljósm. mm.

H veitingar áfram með Skemmuna á Hvanneyri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í tilkynningu frá sóknarnefnd Hvanneyrarsóknar til íbúa Hvanneyrar á FB kemur fram að hún hefur framlengt samning við H Veitingar til 1. september 2023 um leigu á Skemmunni á staðnum sem kaffihúsi. H Veitingar tóku til starfa í ágúst 2021 og eru í eigu Hendriks Hermannssonar.\r\n\r\nHugmynd Hendriks er að vera með starfsemi í Skemmunni fimmtudagskvöld og föstudagskvöld frá klukkan 16-20 og um helgar af og til eftir aðstæðum. Ennfremur verður hægt að leigja Skemmuna undir ýmsa viðburði eins og verið hefur. Guðmundur Sigurðsson er formaður sóknarnefndar og segir hann að það sé von nefndarinnar að glæða megi lífi í Skemmuna og að íbúar á Hvanneyri og nágrenni geti komið saman þau kvöld sem opið verður og átt notalega stund saman.\r\n\r\nÁ Hvanneyri er um 300 manna háskólaþorp, ekki síst kringum starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands. Skemman á Hvanneyri er elsta húsið á staðnum, byggð árið 1896. Hún hefur verið gerð fallega upp á undanförnum árum og þar hefur verið rekið kaffihús um nokkurra ára skeið. H veitingar hafa haft húsið á leigu undir veitingastarfsemi um nokkurn tíma, en Hendrik rak áður veitingastarfsemi á Food station í Borgarnesi og hefur einnig séð um mötuneyti Landbúnaðarháskólans.",
  "innerBlocks": []
}
H veitingar áfram með Skemmuna á Hvanneyri - Skessuhorn