
Heilsugæslan í Ólafsvík. Ljósm. af
Læknalaust er í Ólafsvík og í Grundarfirði í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Þetta eru alveg einstakar aðstæður. Ég held að ég geti alveg fullyrt það að þetta hafi aldrei gerst áður,” segir Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE aðspurð um að nú er læknislaust á sama tíma í Ólafsvík og Grundarfirði.\r\n\r\nUm síðustu helgi urðu forföll á þeim læknum sem áttu að vera þessa vikuna í Ólafsvík og í Grundarfirði. Ekki tókst að manna læknastöðuna í Grundarfirði og hefur verið læknislaust þar alla vikuna. Í Ólafsvík tókst að fá lækni til að sinna störfum þar frá síðasta sunnudegi og fram að hádegi í gær en nú hefur verið læknislaust þar síðan þá. Jóhanna Fjóla segir að von sé á lækni á vakt í Ólafsvík strax í fyrramálið, föstudag, sem sinnir þeim tilvikum sem upp koma um helgina. Hún á svo ekki von á öðru en að í næstu viku verði allt eins og það á að vera því búið er að finna lækna fyrir báðar starfsstöðvar í næstu viku. Jóhanna segir að það sé þó ekki svo að engin þjónusta sé á þessum stöðum því hjúkrunarfræðingar eru á vakt og reyna þeir eftir bestu getu að aðstoða fólk og sinna því sem þeir geta. Þá eru þeir í góðu sambandi við lækna símleiðis sem þeir geta ráðfært sig við. Einnig er læknir í Stykkishólmi sem er á bakvakt í Snæfellsbæ og í Grundarfirði.\r\n\r\nErfiðlega hefur gengið síðustu vikur og mánuði að fá lækna til að sinna læknisþjónustu á landsbyggðinni og þeir sem koma dvelja stutt í senn og koma svo kannski aftur seinna. Þá nefnir Jóhanna þær aðstæður sem uppi eru á Heilsugæslunni í Borgarnesi en þurft hefur að manna læknastöður þar frá degi til dags frá því í lok júlímánaðar. Þó er von á lækni í fullt starf þar núna 15. september. „Ég held ég geti fullyrt að aðstæður sem þessar hafa aldrei komið upp áður, en það er bara ótrúlega erfitt að fá lækna til að sinna störfum á landsbyggðinni. Við erum sem betur fer búin að leysa þetta fyrir næstu viku en svo er bara að bíða og sjá,“ segir Jóhanna Fjóla að lokum.",
"innerBlocks": []
}