
Dæluhús Veitna í Grábrókarhrauni. Ljósm. sþ
Vatnsveituholur endurnýjaðar á Seleyri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<p style=\"font-weight: 400;\">Neysluvatn hefur síðustu árin verið leitt úr Grábrókarhrauni og Seleyri til Borgarness og nærsveita, en á þeim tíma hafa af og til komið upp talsverð gruggvandamál með vatnsveitu Grábrókar. Í sumar voru boraðar tvær vinnsluholur á Seleyri sem koma munu í stað núverandi holna á svæðinu en eru þær komnar til ára sinna. Talið er að svæðið ætti að geta gefið um 30 lítra á sekúndu, samkvæmt samantekt Veitna. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltúi Veitna, segir í samtali við Skessuhorn að sumarið 2019, þegar mikil þurrkatíð stóð yfir, hafi komið í ljós hve afkastageta Vatnsveitu Borgarness og nærsveita er háð tíðarfari.</p>\r\n<p style=\"font-weight: 400;\">„Í langvarandi þurrkatíð geta álagstoppar í vatnsveitunni farið yfir afkastagetu hennar. Vinnuhópur var skipaður í september 2020 til að fara yfir stöðu vatnsveitu Borgarness og nærsveita og koma með tillögur að aðgerðum. Ákveðið var að endurtengja lindir í Hafnarfjalli sem hætt var að nota þegar Grábrókarveita var tekin í gagnið og sett var þá einnig upp lýsingartæki fyrir lindaveituna við Grábrók. Gerð var breyting á stýringu Grábrókarveitu og hefur með því bæði náðst að minnka vatnsupptöku og lækka gruggmagn í veitunni. Þrátt fyrir að árangur hafi náðst geta enn komið gruggskot í veitunni, einkum í tengslum við jarðskjálfta. Í kjölfar jarðskjálfta eru holurnar hreinsaðar og er almennt skolað út úr aðveitulögninni tvisvar á ári,“ segir Ólöf.</p>\r\n<p style=\"font-weight: 400;\">Vinnuhópurinn komst að þeirri niðurstöðu að ráðast þyrfti í endurnýjun á vatnsveitunni á Seleyri til þess að tryggja vatnsöflun á svæðinu til framtíðar en núverandi vinnsluholur eru komnar vel til ára sinna og lítur út fyrir að önnur þeirra sé að einhverju leyti stífluð. „Í sumar voru því boraðar tvær nýjar vinnsluholur. Nýju holurnar voru boraðar innan núverandi brunnsvæðis og eru 18 m djúpar. Borvinnan gekk vel og gaf blástursprófun í lok borunar væntingar um að hvor hola myndi gefa þá 15 lítra á sekúndu sem vonast var eftir, en það er í takti við upprunalega afkastagetu núverandi hola. Ekki er því um að ræða mikla forðaaukningu af svæðinu þar sem of mikil vinnsla getur leitt til innstreymis af söltu vatni. Þar sem verið var að bora á svæðinu var tækifærið nýtt og tilraunahola einnig boruð í Grábrókarhrauni en markmiðið var að athuga hvort breytt holuhönnum og dreifðari vinnsla gæti leitt til minni gruggupptöku. Sú hola var 33 m djúp,“ segir Ólöf. „Því miður sýndi borunin að gruggvandamálið er útbreitt á svæðinu. Í haust verður framkvæmd dæluprófun, bæði á Seleyri og í Grábrók, og fæst þá nákvæmara mat á afköstum og einnig betri sýn á grugg við dælingu úr nýju holunni í Grábrókarhrauni. Í kjölfarið á því verða teknar saman heildarniðurstöður verkefnisins. Nýju holurnar á Seleyri verða svo virkjaðar á næstu árum, í stað núverandi hola,“ segir Ólöf.</p>",
"innerBlocks": []
}