Frá alþjóðakaffinu sem haldið var í Ásgarði í lok síðasta mánaðar. Ljósm. lbhí.

Stærsti hópur skiptinema á Hvanneyri hingað til

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Haustönnin í Landbúnaðarháskóla Íslands fer vel af stað og þar svífur alþjóðlegur andi yfir vötnum. Í haust hóf stærsti hópur skiptinema hingað til, nám við skólann, en alls eru þeir 21 talsins frá átta Evrópulöndum og búa þeir allir á Hvanneyri. Síðasta dag ágústmánaðar var blásið til alþjóðakaffis í aðalbyggingu skólans á Hvanneyri sem kallast Ásgarður. Tilefnið var ekki aðeins að hafa vettvang til að hitta og kynnast skiptinemunum því einnig komu í heimsókn nemar úr landgræðsluskóla GRÓ sem er hluti af þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Það má því segja að starfsemi skólans sé bæði fjölbreytt og alþjóðleg.\r\n\r\n<strong>GRÓ LRT</strong>\r\n\r\nLandgræðsluskólinn, GRÓ LRT, er samstarfsverkefni utanríkisráðuneytisins, Landbúnaðarháskóla Íslands og Landgræðslunnar og er markmið hans að þjálfa sérfræðinga frá þróunarlöndum sem glíma við land- og jarðvegseyðingu og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga. Þessir nemendur dvelja hér á landi í sex mánuði. Þau eru nú að ljúka sinni dvöl og halda heim á leið í lok september. GRÓ er heiti á Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu og samanstendur af fjórum skólum með sérstaka áherslu á að efla getu stofnana samtaka og einstaklinga í þróunarríkjum. Landbúnaðarháskólinn hýsir einn þeirra, Landgræðsluskólann, og eru að þessu sinni 19 nemendur frá átta löndum Afríku og Asíu. Nemendur GRÓ áttu góðan dag á Hvanneyri en starfsstöð þeirra er alla jafnan á Keldnaholti í Reykjavík. Heimsókninni lauk síðan með fyrrnefndu alþjóðakaffi.\r\n\r\n<em>Nánar má lesa um þetta í nýjasta tölublaði Skessuhorns.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Stærsti hópur skiptinema á Hvanneyri hingað til - Skessuhorn