Horft til suðvesturs yfir svæðið sem um ræðir. Ljósm. þk.

Nýtt deiliskipulag í ferli fyrir Húsafell 1 og Bæjargil

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Húsafell 1 og Bæjargil í Hálsasveit. Nefndin leggur til að sveitarstjórn samþykki tillöguna til auglýsingar. Deiliskipulagið tekur til ríflega 5,2 ha viðskipta- og þjónustusvæðis á gömlu bæjartorfunni í Húsafelli. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir gistihúsi og sex spildum fyrir frístundahús á jörðinni Húsafelli 1, sem er Gamli bærinn og nágrenni hans í suðvesturátt, og er svæðið sem um ræðir 4,35 ha að stærð. Þá er gert ráð fyrir vinnustofu, sýningaraðstöðu, legsteinasafni og þjónustuhúsi á lóðinni Bæjargili, sem er athafnasvæði listamannsins Páls Guðmundssonar og er svæði hans skilgreint 0,9 ha. Einnig er í tillögunni gert ráð fyrir bílastæði sem skipt er á milli landeigenda og ætlað hvoru landi fyrir sig. Aðkoma að svæðinu er frá Húsafellsvegi og Héraðsvegi sem tengjast Hálsasveitarvegi. Deiliskipulagstillaga þessi er unnin á forsendum samkomulags sem undirritað var 12. ágúst 2021 af sveitarstjóra Borgarbyggðar, Sæmundi Ásgeirssyni eiganda Húsafells 1 og Páli Guðmundssyni á Húsafelli, eiganda lóðarinnar Bæjargils sem stofnuð var 2013 með skiptum úr landi Húsafells 2 og 3.\r\n\r\nÍ afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar í gær kemur fram að fallið er frá lýsingu á deiliskipulagi þar sem allar megin forsendur eru tilteknar í tillögu að aðalskipulagi sem er nú í auglýsingaferli. „Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Húsafell 1 og Bæjargil til auglýsingar. Aðalskipulagsbreyting er gerð samhliða.“\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56115\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56115 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Nytt-deiliskipulag-fyrir-Husafell-1-og-Baejargil-600x403.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"403\" /> Nýtt deiliskipulag fyrir Húsafell 1 og Bæjargil. Teikning: Sveinn Ívarsson arkitekt FAÍ.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Nýtt deiliskipulag í ferli fyrir Húsafell 1 og Bæjargil - Skessuhorn