
Sigfríður Björnsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Ljósm. Skessuhorn/sþ
Tónlistarskóli Borgarfjarðar varð 55 ára í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tónlistarskóli Borgarfjarðar tók til starfa 7. september árið 1967 og átti því stórafmæli í gær. Til stendur að hafa opinn dag í skólanum þriðjudaginn 8. nóvember næstkomandi og halda upp á afmælið um leið. Fyrsta veturinn sem skólinn starfaði stunduðu 39 nemendur nám við skólann og voru kennarar fjórir auk skólastjóra. Nemendum hefur fjölgað og hafa yfir 200 nemendur stundað tónlistarnám á hverju vetri síðustu ár. Þrettán kennarar starfa nú við skólann í misstórum hlutföllum auk Sigfríðar Björnsdóttur skólastjóra.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að námið sé opið öllum aldurshópum og nemendur stundi nám við skólann á öllum stigum þess þó flestir séu eðlilega í grunnnámi á sitt hljóðfæri. Vinsælustu hljóðfærin í tónlistarnáminu eru píanó og gítar, en 81 nemandi stundar píanónám og 27 gítarnám. Það er einnig kennt á ukulele, trompet, flautu og fleiri blásturshljóðfæri, rafmögnuð hljóðfæri (gítar og bassa) og svo var tekin aftur upp fiðlukennslu í Borgarbyggð í haust. Slagverk og söngur eru einnig vinsælar námsgreinar og hóptímar, fyrir elstu börn leikskóla og söngleikjadeild skólans, fyllast á hverju hausti.\r\n\r\nAllir skólar þurfa að stunda einhverjar tilraunir og Tónlistarskóli Borgarfjarðar er þar engin undantekning. Núna í haust bauðst í fyrsta skipti nám sem kallað er „stúdíóið sem hljóðfæri,“ eins og kom fram í frétt Skessuhorns nýverið. Skólinn býr svo vel að þrír af kennurum hans eru fagmenn á sviði hljóðversvinnu og mun Árni Jónsson tónlistarkennari stíga þetta fyrsta skref í haust og kenna að nota hljóðver. Borgarbyggð stendur að rekstri tónlistarskólans og einnig greiða nemendur skólagjöld sem samkvæmt lögum er varið í annan kostnað við reksturinn en launakostnað. „Uppbygging aðstöðu til fjölbreyttrar tónlistariðkunar er stöðugt verkefni og spennandi,“ segir á heimasíðu Borgarbyggðar. Nú síðast má nefna stúdíóið sem komið hefur verið á fót í Borgarnesi, en stefnt að því að slík aðstaða verði í boði víðar.\r\n\r\nÞá segir enn fremur á heimasíðu Borgarbyggðar að samstarf við foreldra sé mikilvægt og sannað að stuðningur heimila við tónlistarnámið skiptir sköpum. Samstarf við foreldra er líka mikilvægt fyrir skólann sjálfan sem stofnun í sífelldri þróun. Foreldrafélag Tónlistarskóla Borgarfjarðar er í burðarliðnum og verður með því formgert það samstarf sem lengi hefur staðið og verið heillaríkt.\r\n\r\nÁkveðið var að víkka út starfssvið tónlistarskólans með það markmið að bjóða tækifæri til vandaðs listnáms í fleiri listgreinum í Borgarbyggð. Fyrsta verkefnið var unnið í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar og endaði með leiksýningu vorið 2022. Síðla sumars var haldið myndlistarnámskeið fyrir börn og gekk það vel. Í haust er í boði grunnnámskeið í leiklist fyrir elstu unglinga grunnskólans og þá sem eru á fyrstu árum í menntaskóla. Jafnframt er í boði tveggja vikna myndlistarnámskeið á haustdögum fyrir aðeins yngri aldurshóp.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56111\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56111 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Tonlistarskoli-Borgarfjardar-er-55-ara_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Árni Jónsson í nýju hljóðveri við skólann, en kennsla hefst í notkun þess nú í haust.[/caption]\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}