Haraldur Thorlacius að sópa sparkvöllinn. Ljósm. stykkisholmur.is

Sparkvöllurinn sópaður í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Unnið er nú að því að bæta aðstöðu knattspyrnuiðkenda á sparkvellinum við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Lítill götusópur hefur farið yfir völlinn í þeim tilgangi að sópa upp kurlinu sem hefur reynst mörgum þreytandi. Með því að sópa völlinn og þrífa hann er vonast til þess að losna við eða draga úr þeirri svertu sem berst í föt knattspyrnuiðkenda.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu bæjarins að einnig standi til að bera á tréverkið umhverfis völlinn en knattspyrnudeild Snæfells hefur tekið það verkefni að sér. Íbúar sem vilja leggja sitt að mörkum við viðhald sparkvallarins og styðja þannig knattspyrnudeildina eru hvattir til að setja sig í samband við forstöðumann íþróttamannvirkja, Arnar Hreiðarsson, í síma 865-6232 upp á að nálgast aðföng í verkið.",
  "innerBlocks": []
}
Sparkvöllurinn sópaður í Stykkishólmi - Skessuhorn