{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bæjaryfirvöld á Akranesi ákváðu fyrir síðustu mánaðamót að skerða til muna opnunartíma í baðlauginni Guðlaugu við Langasand. Átti hún þá að vera opin dagpart tvo virka daga í viku og um helgar. Þessi ákvörðun mætti harðri gagnrýni íbúa á Akranesi. Þá voru einnig fjölmargir ferðamenn sem gripu í tómt dagana sem laugin var lokuð, en hún hefur eins og kunnugt er notið vinsælda og hlotið ýmsar viðurkenningar sem baðstaður. Nú hafa bæjaryfirvöld ákveðið að framlengja sumaropnunartíma í Guðlaugu út septembermánuð og verður því opið alla daga vikunnar. Frá mánudegi til föstudags er hún opið frá klukkan 12 til 20 og um helgar frá klukkan 10 til 18. Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að skoðað verður hvort opnunartíminn verði framlengdur enn frekar eftir septembermánuð; „með því markmiði að þetta einstaka mannvirki nýtist með sem bestum hætti.“",
"innerBlocks": []
}
Sumaropnunartími í Guðlaugu framlengdur - Skessuhorn