Fréttir

true

Sparkvöllurinn sópaður í Stykkishólmi

Unnið er nú að því að bæta aðstöðu knattspyrnuiðkenda á sparkvellinum við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Lítill götusópur hefur farið yfir völlinn í þeim tilgangi að sópa upp kurlinu sem hefur reynst mörgum þreytandi. Með því að sópa völlinn og þrífa hann er vonast til þess að losna við eða draga úr þeirri svertu sem berst…Lesa meira

true

Þoka á fjöllum gerir leitarmönnum erfitt fyrir

Þessa dagana standa víða yfir göngur og leitir. Síðustu tvo daga hefur veðrið ekki leikið við fólk á fjöllum; þoka hefur einkennt veðráttuna upp til fjalla. Komið var fram í myrkur í gær þegar rekstur af Arnarvatnsheiði kom til réttar í Fljótstungu og þar gera menn ráð fyrir að illa hafi smalast. Fénu var réttað…Lesa meira

true

Vantar þrjá starfsmenn í Esjuskálann Baulunni

Esjuskálinn tók í byrjun júní í sumar við rekstri í Baulunni í Stafholtstungum og er þar með verslun, veitingastölu auk þess að selja eldsneyti og vörur fyrir bílinn. Fríða Birna Þráinsdóttir kaupmaður segir að mikið hafi verið að gera hjá þeim í allt sumar, jafnvel meira en þau hafi reiknað með. Samhliða rekstrinum í Borgarfirði…Lesa meira

true

Er með sjúkdóm en er ekki veik

Rætt við Rögnu Sólveigu Þórðardóttur um sjálfsofnæmissjúkdóminn Alopecia Ragna Sólveig Þórðardóttir er 27 ára, fjögurra barna móðir, búsett í Reykjavík. Ragna er fædd og uppalin á Akranesi og nær öll hennar fjölskylda er enn búsett þar. Eiginmaður Rögnu er Ingvar Þór Gylfason listmálari. Fyrir á Ingvar dótturina Unu Björgu, 16 ára, og saman eiga þau…Lesa meira

true

Fimm samlitir flutningabílar

Þeim var haganlega lagt flutningabílunum frá Jóni og Margeiri á bílaplaninu við Esjuskálann í Baulunni sl. miðvikudagskvöld. Allir voru bílstjórarnir inni í kvöldmatartímanum sínum. Aðspurðir sögðust þeir allir vera að flytja fisk og nú voru þeir að koma frá Ísafirði með afla áleiðis í vinnslu. Bílarnir og flutningskassarnir á þeim voru allir utan einn af…Lesa meira

true

Anchora eftir Önnu Þorvaldsdóttur flutt á Íslandi í gær

Tónlistarhátíðin BBC Proms fór fram í síðasta mánuði þar sem verkið Anchora var frumflutt 11. ágúst í Royal Albert Hall í London. Verkið er eftir tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur en Anna er eitt fremsta tónskáld Íslendinga og ólst hún upp í Borgarnesi. Verkið var sérstaklega pantað fyrir hátíðina sem er ein stærsta og virtasta tónlistarhátíð heims.…Lesa meira

true

Tippinu breytt

Vegna andláts Elísabetar Englandsdrottningar hefur öllum leikjum í ensku úrvalsdeildinni verið frestað. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að því hafi verið ákveðið að búa til nýjan getraunaseðil fyrir laugardaginn og fella getraunaseðilinn með ensku leikjunum úr gildi. „Þeir tipparar sem tippuðu fyrr í vikunni á seðilinn sem felldur hefur verið úr gildi, fá…Lesa meira

true

Unnið að því að setja útsýnisskífu á Hafnarfjall

Síðasta miðvikudag fóru félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu. Í leiðangrinum tóku þátt Jakob Hálfdánarson, en hann hefur smíðað útsýnisskífur sem finna má um land allt, Jón Víðis Jakobsson aðstoðarmaður hans, Bragi Hannibalsson fjallamaður…Lesa meira

true

Brákarhlíð og MB staðfesta samstarf um nýbyggingu

Í gær undirritaði forsvarsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar og Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi viljayfirlýsingu um uppbyggingu sameiginlegs íbúðarhúsnæðis og nemendagarða í bænum. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í nokkurn tíma og fram kemur í viljayfirlýsingunni að markmiðið sé annarsvegar að skapa nýtt framboð á almennum markaði í Borgarbyggð hvað varðar framboð íbúðarhúsnæðis fyrir 65 ára…Lesa meira

true

Vilja úttekt á starfsemi MAST sem allra fyrst

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hélt í gær sérstakan fund og kallaði til hans Sigurborgu Daðadóttur yfirdýralækni og Hrönn Ólínu Jörundsdóttir forstjóra Matvælastofnunar. Til umfjöllunar var hvernig MAST bregst við ábendingum frá almenningi þegar grunur vaknar um illa meðferð á dýrum. Fulltrúar MAST fóru á fundinum yfir þá verkferla sem stofnunin fylgir í dýravelferðarmálum. Vísað var…Lesa meira