{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna andláts Elísabetar Englandsdrottningar hefur öllum leikjum í ensku úrvalsdeildinni verið frestað. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að því hafi verið ákveðið að búa til nýjan getraunaseðil fyrir laugardaginn og fella getraunaseðilinn með ensku leikjunum úr gildi. „Þeir tipparar sem tippuðu fyrr í vikunni á seðilinn sem felldur hefur verið úr gildi, fá ágiskun sína endurgreidda á spilareikning sinn og þeir sem hafa keypt getraunaseðil á sölustöðum fyrr í vikunni, fá hann endurgreiddan í næstu viku, á sölustað eða hjá Íslenskum getraunum, Engjavegi 6.“",
"innerBlocks": []
}