{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hélt í gær sérstakan fund og kallaði til hans Sigurborgu Daðadóttur yfirdýralækni og Hrönn Ólínu Jörundsdóttir forstjóra Matvælastofnunar. Til umfjöllunar var hvernig MAST bregst við ábendingum frá almenningi þegar grunur vaknar um illa meðferð á dýrum. Fulltrúar MAST fóru á fundinum yfir þá verkferla sem stofnunin fylgir í dýravelferðarmálum. Vísað var til að fram kemur í ársskýrslu MAST árið 2021 að um og yfir 90% allra skoðunaratriða í eftirliti MAST eru metin í lagi. Fram kom að allir ferlar stofnunarinnar eru bundnir stjórnsýslulögum, svo sem er varðar rannsóknarskyldu, jafnræðisreglu og regluna um meðalhóf. Þakkaði nefndin gestum sínum fyrir greinargóða kynningu og upplýsingagjöf en bókaði að lokum eftirfarandi:\r\n\r\n„Umhverfis- og landbúnaðarnefnd telur ferlið eins og það er hjá MAST í dag, vera of þungt í vöfum og telur mikilvægt að stjórnsýslan skoði verkferla sem stofnunin notar, einkum þegar um er að ræða alvarleg dýravelferðarmál sem oft lúta að heilsu dýra og manna. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir bændur að ímynd landbúnaðarins og sveitarfélagins litist ekki af einstökum málum sem rata í fjölmiðla. Nefndin fagnar fyrirhugaðri úttekt Ríkisendurskoðunar á starfsemi stofnunarinnar [MAST, innsk. blm] og telur æskilegt að slík úttekt fari fram sem allra fyrst.“",
"innerBlocks": []
}
Vilja úttekt á starfsemi MAST sem allra fyrst - Skessuhorn