Fríða Birna afgreiðir pylsu með öllu, en í gær varð hún að hafa grillið lokað vegna starfsmannaskorts. Ljósm. mm

Vantar þrjá starfsmenn í Esjuskálann Baulunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Esjuskálinn tók í byrjun júní í sumar við rekstri í Baulunni í Stafholtstungum og er þar með verslun, veitingastölu auk þess að selja eldsneyti og vörur fyrir bílinn. Fríða Birna Þráinsdóttir kaupmaður segir að mikið hafi verið að gera hjá þeim í allt sumar, jafnvel meira en þau hafi reiknað með. Samhliða rekstrinum í Borgarfirði rekur fjölskyldan áfram Esjuskálann á Kjalarnesi. Mikil umferð var í Baulunni í gærkvöldi þegar blaðamaður leit við, en sökum skorts á starfsfólki varð Fríða að hafa grillið lokað. „Okkur sárvantar starfsfólk í Bauluna og höfum ekki fengið viðbrögð þótt við höfum auglýst og rætt við fólk hér í grenndinni. Hér vantar því tilfinnanlega þrjá starfsmenn og ég hvet alla sem áhuga hafa að setja sig í samband við mig,“ segir Fríða og bendir á netfangið <a href=\"mailto:esjugrund@esjugrund.is\">esjugrund@esjugrund.is</a>",
  "innerBlocks": []
}
Vantar þrjá starfsmenn í Esjuskálann Baulunni - Skessuhorn