Síðdegis í gær var féð af afrétti Brekku í Norðurárdal rekið til réttar. Smalamennska á brekkunni gekk ágætlega og þar sluppu menn við þoku, sem einkenndi veðráttuna austar og ofar á afréttum bænda. Ljósm. mm

Þoka á fjöllum gerir leitarmönnum erfitt fyrir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þessa dagana standa víða yfir göngur og leitir. Síðustu tvo daga hefur veðrið ekki leikið við fólk á fjöllum; þoka hefur einkennt veðráttuna upp til fjalla. Komið var fram í myrkur í gær þegar rekstur af Arnarvatnsheiði kom til réttar í Fljótstungu og þar gera menn ráð fyrir að illa hafi smalast. Fénu var réttað í morgun.\r\n\r\nÍ dag er síðasti leitardagur fyrir fyrstu Þverárrétt í Borgarfirði og þar hefur sömuleiðis þoka og slæmt skyggni gert leitarmönnum erfitt fyrir. Að sögn Davíðs Sigurðsson fjallkóngs gengu smalamennskur vel á föstudaginn þegar leitað var upp í Snjófjöll. Í gær og í dag er hins vegar talsverð þoka og leitarskilyrði afleit. „Það er því drjúgur hluti af fjallinu ósmalaður og bíður annarrar leitar. Við munum hins vegar reka til réttar nú síðdegis og féð rennur ágætlega enda hefur kólnað og hér er norðan blástur. Það eru sömuleiðis mjög erfið leitarskilyrði á svæðinu sem Hvítsíðungar og Þverhlíðingar smöluðu í gær og enn er þoka á þeirra svæði í dag, en þó er þokulaust ofan í giljum og menn gera því sitt besta,“ segir Davíð.",
  "innerBlocks": []
}
Þoka á fjöllum gerir leitarmönnum erfitt fyrir - Skessuhorn