
Leiðangursmenn við mælingar. Ljósm. Ferðafélag Borgarfjarðar
Unnið að því að setja útsýnisskífu á Hafnarfjall
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðasta miðvikudag fóru félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu.\r\n\r\nÍ leiðangrinum tóku þátt Jakob Hálfdánarson, en hann hefur smíðað útsýnisskífur sem finna má um land allt, Jón Víðis Jakobsson aðstoðarmaður hans, Bragi Hannibalsson fjallamaður og Jónína Pálsdóttir gjaldkeri FFB. Hópurinn lagði af stað fyrir birtingu og kom ekki niður fyrr en tekið var að skyggja. Verkið gekk vel enda skyggni gott og rjómablíða á toppi Hafnarfjalls. Teknir voru yfir 300 GPS punktar og hundruð ljósmynda. Þá var hópurinn í símasambandi við landfróða menn í byggð til að geta skráð hárréttar upplýsingar um það sem fyrir augu ber á þeim stað þar sem skífan verður sett niður.\r\n\r\nFram kemur á facebook síðu Ferðafélagsins að nú taki við að vinna úr öllum þeim gögnum sem aflað var. Síðan verður skífan sjálf smíðuð í vetur og vonandi sett á sinn stall í byrjun næsta sumars. Ef að líkum lætur ættu vinsældir Hafnarfjalls að aukast enn frekar með tilkomu útsýnisskífunnar. Verkefni þetta er styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.\r\n\r\nFyrr í sumar setti ferðafélagið upp upplýsingaskilti við rætur Hafnarfjalls en fyrir skömmu var lokið við að stika leiðina upp á topp og hreinsa gamlar girðingar sem lágu meðfram gönguleiðinni.",
"innerBlocks": []
}