Fréttir

true

Sævar valinn formaður blikksmiðjueigenda á Norðurlöndunum

Um síðustu helgi var hinn árlegi fundur formanna Félags blikksmiðjueigenda á Norðurlöndunum. Var hann haldinn í Noregi að þessu sinni. Í fyrsta skipti í sögunni var Íslendingur valinn sem formaður þessara systursamtaka og var það Sævar Jónsson eigandi Blikksmiðju Guðmundar á Akranesi sem hreppti hnossið. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við í Blikksmiðju Guðmundar á mánudaginn og…Lesa meira

true

Áskorun til Akraneskaupstaðar varðandi daggæslu barna

Skortur á leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu hefur líklega ekki farið fram hjá neinum í haust. Foreldrar barna á höfuðborgarsvæðinu hafa mótmælt aðgerðarleysi Reykjavíkurborgar í leikskólamálum með áberandi hætti. Í ágúst tóku foreldrar sig til að mynda saman og mættu með börn sín í Ráðhús Reykjavíkur og héldu þar úti daggæslu daglangt í nokkur skipti. Það gerðu…Lesa meira

true

Lauk vegglistarverkinu með áritun

Síðdegis í gær var boðað til lágstemmdrar athafnar við Akraneshöfn þar sem Bjarni Skúli Ketilsson listamaður lauk formlega við vegglistaverkið sem hann hefur unnið að undanfarna daga. Málverkið er á gafli mjölgeymslu Brims en á því er lífinu við höfnina gerð skemmtileg skil. Í tilefni 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar var ákveðið að minnast þeirra tímamóta…Lesa meira

true

Þoka og logn hefur einkennt veðrið

Undanfarna daga hefur verið afar stillt veður víða um vestanvert landið. Þoka hefur legið yfir láglendi og veðrið kyrrt. Meðfylgjandi myndir voru teknar á sitthvorum staðnum í landshlutanum í gær á sama tíma. Yfir þokubakkanum sem lá yfir Ólafsvíkurenni reis Snæfellsjökull tignarlega í öllu sínu veldi. Drónamyndina tók Alfons Finnsson og þurfti hann að fljúga…Lesa meira

true

Veiðiþjófar gómaðir við Norðurá

Snemma í gærkvöldi varð leiðsögumaður við Norðurá í Borgarfirði var við menn að ólöglegum veiðum við Kálfhyl. Magnús Fjeldsted veiðivörður fór á staðinn og kallaði í framhaldinu lögreglu á svæðið, sem tók skýrslu af mönnunum. Eiga þeir yfir höfði sér háa fjársekt. Magnús segir að hér hafi verið á ferðinni tveir ungir Danir sem dvöldu…Lesa meira

true

Áhugi á sveppamó fer vaxandi

Haustið er nú að ganga í garð með tilheyrandi uppskerutíma, en lambakjöt, kartöflur, ber og sveppir lita undirbúning margra fyrir komandi vetur. Berjauppskeran hefur þó á flestum stöðum brugðist en annað er að segja af sveppauppskeru ársins. Skógræktarfélag Borgarfjarðar stóð fyrir þremur sveppagöngutúrum í lok ágúst þar sem í boði var kennsla og fræðsla í…Lesa meira

true

Vonandi hagnast jörðin í heild – stórfelld skógrækt í Dölum

Fyrirtækið Yggdrasil Carbon hefur tekið á leigu landspildu sem tilheyrir jörðinni Ljárskógum í Dalabyggð og bíður þess að fá samþykkt framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á jörðinni. Skipulagsfulltrúi Dalabyggðar vinnur nú að því með Yggdrasil að teikna upp það svæði í landi Ljárskóga sem leggja má undir skógrækt en Björgvin Stefán Pétursson framkvæmdastjóri Yggdrasils segir að líklega…Lesa meira

true

Engir tveir dagar eins í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Hákon Ásgeirsson segir frá nýju starfi sínu sem þjóðgarðsvörður og opnun nýrrar Þjóðgarðsmiðstöðvar Engir tveir dagar eru eins hjá Hákoni Ásgeirssyni sem í sumar tók við starfi þjóðgarðsvarðar við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Hákon er fæddur og uppalinn á Akranesi en hann segir afa sinn hafa kveikt áhuga sinn fyrir náttúrunni. ,,Upphaflega kemur áhuginn á náttúrunni frá…Lesa meira

true

Barnamenningarhátíð Vesturlands að hefjast

Barnamenningarhátíð Vesturlands verður haldin í þriðja skiptið nú í haust en hátíðin er á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Á síðasta ári fór hún fram á Akranesi en í ár tekur Snæfellsbær við keflinu. Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi Snæfellsbæjar, segir alla velkomna á hátíðina en viðburðir verða í boði út septembermánuð. ,,Hátíðin var…Lesa meira

true

Breyttur útivistartími barna og unglinga

Í býrjun mánaðarins breyttist útivistartími barna og unglinga yfir í vetrartíma. (1. september til 1. maí). Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20. Börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag sem þýðir að 1. janúar þess árs sem…Lesa meira