Hákon Ásgeirsson hóf störf sem þjóðgarðsvörður á Snæfellsnesi í sumar. Hann er hér í Friðlandi að Fjallabaki en hann hafði umsjón með svæðinu árin 2016-2022. Ljósm. aðsend.

Engir tveir dagar eins í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hákon Ásgeirsson segir frá nýju starfi sínu sem þjóðgarðsvörður og opnun nýrrar Þjóðgarðsmiðstöðvar\r\n\r\nEngir tveir dagar eru eins hjá Hákoni Ásgeirssyni sem í sumar tók við starfi þjóðgarðsvarðar við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Hákon er fæddur og uppalinn á Akranesi en hann segir afa sinn hafa kveikt áhuga sinn fyrir náttúrunni. ,,Upphaflega kemur áhuginn á náttúrunni frá afa mínum en hann var alltaf með mér úti í garði. Þaðan lá svo leiðin í Garðyrkjuskólann en eftir það nám langaði mig að fræðast meira um náttúruna. Þá fór ég í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri en ég tók bæði BS- og masterspróf þar í náttúru- og umhverfisfræði. Svo kom ég hingað 2006 en þá fór ég á landvarðarnámskeið hjá Umhverfisstofnun og vann hér á sumrin í þjóðgarðinum á meðan ég var í námi, eða í fimm ár. Ég var svo ráðinn í fullt starf hjá Umhverfisstofnun 2011 sem sérfræðingur á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar vann ég í fimm ár, m.a. að friðlýsingu Látrabjargssvæðisins. Svo fór ég þaðan á Hellu og var þar með umsjón á miðhálendinu, t.d. að Fjallabaki,“ segir Hákon sem hóf síðan störf sín á Snæfellsnesi í júlí í sumar.\r\n\r\n<em>Viðtal við Hákon Ásgeirsson má lesa í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Engir tveir dagar eins í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli - Skessuhorn