Baski setur lokapunktinn á verk sitt með áritun.

Lauk vegglistarverkinu með áritun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðdegis í gær var boðað til lágstemmdrar athafnar við Akraneshöfn þar sem Bjarni Skúli Ketilsson listamaður lauk formlega við vegglistaverkið sem hann hefur unnið að undanfarna daga. Málverkið er á gafli mjölgeymslu Brims en á því er lífinu við höfnina gerð skemmtileg skil.\r\n\r\nÍ tilefni 80 ára afmæli Akraneskaupstaðar var ákveðið að minnast þeirra tímamóta og fá ýmsa listamenn til að skreyta áberandi en auða veggi í bæjarfélaginu. Stefnt er að vígslu sjö listaverka á Vökudögum í haust. En í ljósi þess að Bjarni Skúli, eða Baski eins og hann er jafnan kallaður, er nú á förum til Hollands var ákveðið að þetta verk yrði vígt nú.\r\n\r\nÞeir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Ólafur Páll Gunnarsson fráfarandi formaður menningar- og safnanefndar sögðu frá tilurð þessa verkefnis sem ætlað er að lífga upp á bæjarfélagið. Ýmis fyrirtæki styrkja gerð flestra listaverkanna í bænum, en verk Baska er gjöf frá Faxaflóahöfnum til Akurnesinga í tilefni 80 ára afmælis kaupstaðarins.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56106\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56106 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Lauk-vegglistarverkinu-med-aritun_2-600x409.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"409\" /> Sævar Freyr, Baski og Ólafur Páll.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Lauk vegglistarverkinu með áritun - Skessuhorn