
Úr sveppagöngutúr í Reykholti sem haldinn var af Skógræktarfélagi Borgarfjarðar í síðustu viku. Ljósm. aðsend.
Áhugi á sveppamó fer vaxandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Haustið er nú að ganga í garð með tilheyrandi uppskerutíma, en lambakjöt, kartöflur, ber og sveppir lita undirbúning margra fyrir komandi vetur. Berjauppskeran hefur þó á flestum stöðum brugðist en annað er að segja af sveppauppskeru ársins. Skógræktarfélag Borgarfjarðar stóð fyrir þremur sveppagöngutúrum í lok ágúst þar sem í boði var kennsla og fræðsla í að finna, greina og geyma sveppi. Helgi Guðmundsson skógfræðingur leiðbeindi gönguhópnum og fræddi áhugasama um sveppi sem á vegi þeirra urðu en hann segir Vesturland vera eitt besta sveppasvæði landsins, bæði í formi magns og fjölbreytileika tegunda.\r\n\r\n,,Það var vel mætt miðað við stuttan fyrirvara en þarna kom fólk sem hafði aldrei tínt sveppi áður, líka einhverjir sem höfðu verið að tína í nokkur ár en vildu læra að greina fleiri sveppi. Uppskeran í ár virðist vera misjöfn eftir landsvæðum. Það eru engin töluleg gögn til um sveppauppskeruna svo þetta er svolítið bara hvað fólki finnst. Sjálfur hef ég lítið komist á sveppaveiðar en sé mikla aukningu af fólki í sveppamó við vinnu mína í skógunum,“ segir Helgi. Hann vill meina að mikil vitundarvakning hafi orðið í sveppatínslu á Íslandi en sjálfur fór hann á fræðslunámskeið um sveppi fyrir nokkrum árum. ,,Sveppirnir vaxa allan sólarhringinn en það fer svoldið eftir hvaða svepp þú ert að leita að hversu lengi aldinið er sýnilegt og ætt. Hann getur verið ósýnilegur í byrjun dags og skartað svo sínu fegursta í lok dags, allt eftir veðurfari og umhverfisaðstæðum. Maður þarf helst að finna hvar svepprótin er og fara öðru hvoru að kíkja á staðina. Fólk sem stundar þetta mikið er jafnvel með GPS hnit á leynistöðunum. Stundum þarf að grafa aðeins eftir þeim og lyfta upp mosa og lyngi til að finna sveppi eins og Kantarellur og Gulbrodda. Þetta er reynsla og fræðsla en það finnast þó nokkrir eitraðir og baneitraðir sveppir á Íslandi, sem dæmi um það þá eru bara í garðinum heima hjá mér þriggja stjörnu matsveppir og líka baneitraðir sveppir og allt þar á milli. Allir pípusveppir á Íslandi eru til dæmis ætir en þeir eru með eins og svamphúð undir hattinum. Það er til einn pípusveppur sem er kannski hálfóætur en hann heitir Piparsveppur og getur verið sterkari en chili og sumir nota hann sem krydd. Ég hvet áhugasama til að mæta á námskeið og í fræðslugöngur og læra að greina einn ætan svepp á ári til dæmis. Við Íslendingar erum að byrja að uppgötva þetta hnossgæti sem er út um allt í umhverfi okkar. Einnig er þetta yndislegt fjölskylduútivera, fræðandi og nærandi. Ég vil þakka öllum sem hafa mætt í sveppatínsluna hjá okkur í Skógræktarfélaginu en það verður svo ein ganga í september sem verður auglýst á Facebooksíðu okkar innan tíðar.“ Helgi segir um að gera að hugsa um sveppina sem fersk matvæli og fagnar vaxandi áhuga Íslendinga á sveppatínslu.",
"innerBlocks": []
}