Fimmtán ára plöntur af stafafuru, lerki og birki í vexti í skógrækt á Vesturlandi. Ljósm. mm

Vonandi hagnast jörðin í heild – stórfelld skógrækt í Dölum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrirtækið Yggdrasil Carbon hefur tekið á leigu landspildu sem tilheyrir jörðinni Ljárskógum í Dalabyggð og bíður þess að fá samþykkt framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á jörðinni. Skipulagsfulltrúi Dalabyggðar vinnur nú að því með Yggdrasil að teikna upp það svæði í landi Ljárskóga sem leggja má undir skógrækt en Björgvin Stefán Pétursson framkvæmdastjóri Yggdrasils segir að líklega verði plantað í um 150-180 hektara. Taka á málið fyrir á næsta fundi umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar og segist Björgvin nokkuð viss um að framkvæmdaleyfi fáist að þeim fundi loknum.\r\n\r\n<strong>Gætu plantað 400-450 þúsund trjám</strong>\r\n\r\nÞegar og ef framkvæmdaleyfið verður samþykkt þarf Yggdrasil að fá formlega ræktunaráætlun fyrir svæðið. Þá koma fulltrúar frá Skógræktinni og taka verkefnið út og geta þá í framhaldinu ákveðið hvaða trjátegundir verða gróðursettar. Í framhaldinu hæfist jarðvinna á svæðinu til að undirbúa það fyrir plöntun trjánna sem myndi fara fram næsta sumar. Björgvin segir að líklega verði plantað um 400-450 þúsund trjám á svæðið og verði það klárað næsta sumar. Samkvæmt honum leggur Yggdrasil upp með að opna og loka sínum verkefnum á innan við tveimur árum. Fyrirætlað er að þetta verkefni hefjist með jarðvinnu núna í haust og ljúki næsta sumar þegar plöntuninni er lokið.\r\n\r\n<em>Meira um þetta í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Vonandi hagnast jörðin í heild - stórfelld skógrækt í Dölum - Skessuhorn