Áskorun til Akraneskaupstaðar varðandi daggæslu barna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skortur á leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu hefur líklega ekki farið fram hjá neinum í haust. Foreldrar barna á höfuðborgarsvæðinu hafa mótmælt aðgerðarleysi Reykjavíkurborgar í leikskólamálum með áberandi hætti. Í ágúst tóku foreldrar sig til að mynda saman og mættu með börn sín í Ráðhús Reykjavíkur og héldu þar úti daggæslu daglangt í nokkur skipti. Það gerðu þau til að sýna að það þurfi ekki mikið til þess að húsnæði geti hentað fyrir daggæslu barna. Þá hafa raddir foreldra í samfélaginu öllu verið háværar í haust og kallað er eftir fleiri möguleikum að loknu fæðingarorlofi sem nú er 12 mánuðir.\r\n\r\nForeldrar geta ekki treyst á að barn sitt fái pláss á leikskóla eða hjá dagforeldrum 12 mánaða gamalt eins og hefur sýnt sig ár eftir ár. Foreldrar vilja hafa aukið val um hvað tekur við að loknu fæðingarorlofi. Kjósi þeir að vera lengur heima með barn sitt vilja þeir að kostur sé á greiðsu til þeirra fyrir það. Þá eru sumir foreldrar jafn vel skipaðir til þess að vera lengur heima með barn sitt því enga daggæslu er að fá og því fylgir tilheyrandi tekjutap. Nú hafa foreldrar ungbarna á Akranesi hafið undirskriftasöfnun og hyggjast senda áskorun til að Akraneskaupstaðar þess efnis að hækka niðurgreiðslu til dagforeldra. Þar er tekið fram að bæjarfélagið státi af flottu teymi dagforeldra og í framhaldi af því er óskað eftir því að niðurgreiðsla til dagforeldra sé hækkuð svo hún verði á pari við niðurgreiðslu fyrir leikskólapláss. Í ár var ákveðið að yngstu börn sem kæmust inn á leikskóla á Akranesi í haust væru börn sem eru fædd í júlí 2021. Þeir foreldrar sem áttu börn í ágúst 2021 og síðar þurfa að treysta á að fá pláss hjá dagforeldri fyrir sitt barn og koma þá til með að greiða 449.976 krónum meira en foreldrar barna sem komust inn á leikskóla núna, sér horft fram á tímabilið fram að áramótum.\r\n\r\nFinna má undirskriftalistann <a href=\"https://is.petitions.net/askorun_til_akraneskaupstaar_varandi_daggaslu_barna?u=8335659&amp;s=97178467\">hér</a>.",
  "innerBlocks": []
}
Áskorun til Akraneskaupstaðar varðandi daggæslu barna - Skessuhorn