{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarna daga hefur verið afar stillt veður víða um vestanvert landið. Þoka hefur legið yfir láglendi og veðrið kyrrt. Meðfylgjandi myndir voru teknar á sitthvorum staðnum í landshlutanum í gær á sama tíma. Yfir þokubakkanum sem lá yfir Ólafsvíkurenni reis Snæfellsjökull tignarlega í öllu sínu veldi. Drónamyndina tók Alfons Finnsson og þurfti hann að fljúga í 400 metra hæð til að ná í gegnum bakkann.\r\n\r\nHin myndin er tekin við Erpsstaði í Miðdölum, einnig á hádegi þriðjudaginn 6. september. „Það kemur fyrir nokkrum sinnum á ári að þoku slær á dalinn, en svona mikið í þetta langan tíma er afar sjaldgæft og rekur mig ekki minni til þess áður þau 25 ár sem ég hef verið búsettur í Suður Dölum,“ segir Þorgrímur á Erpsstöðum. „Þokan er að mestu einskorðuð við suður Dalina og þegar ekið er uppúr Dölunum í suðurátt, er komið uppúr þokunni á brún Brekkunnar, norðan til,“ bætir hann við. Þess má geta að Brattabrekka er einmitt 402 metra hár fjallgarður og því náði þokan þar jafn hátt og yfir Ólafsvík.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-56103\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/THoka-og-logn-einkennt-vedrid_2-600x292.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}