
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. mm
Yfirdýralæknir og forstjóri MAST mæta á nefndarfund í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar kemur nú klukkan 13 í dag saman til aukafundar. Aðeins eitt mál er á dagskrá, en það snýr að dýravelferðarmálum. Sigrún Ólafsdóttir bóndi og formaður nefndarinnar segir í samtali við Skessuhorn að um aukafund í nefndinni sé að ræða en ákveðið hafi verið að boða til hans í ljósi umræðna um mál sem snertir dýravelferð og mikið hefur verið í umræðunni síðustu vikuna. Á fundinn mæta Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir og Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar.\r\n\r\n„Við munum eiga samtal við gesti okkar um vinnuaðferðir og verklag Matvælastofnunar sem ber samkvæmt lögum að hafa umsjón og eftirlit með dýravelferð í landinu. Fundurinn verður á almennum nótum um það mál, en ekki einstaka mál sérstaklega þótt þau beri vafalítið á góma,“ segir Sigrún. „Við viljum reyna að komast til botns í því hvort einhverju sé ábótavant í vinnulagi MAST miðað við núgildandi lög, eða hvort þrýsta verði á Alþingi að breyta þeirri lagaumgjörð sem er í gildi. Sveitarfélög hafa enga beina aðild að málum þar sem grunur kviknar um illa meðferð á dýrum. Fyrir mig sem bónda, íbúa og bara þegn í landinu vil ég þó leita svara við spurningum sem upp hafa komið síðustu daga. Ég mæti á fundinn með þétt skrifað blað með spurningum til gesta okkar.“\r\n\r\nSigrún segir að á undanfarinni viku hafi hún fengið óteljandi hringingar og skilaboð frá fólki víðsvegar af landinu sem er gáttað á þeim stað sem dýravelferðarmál eru og meintu viðbragðaleysi að því er virðist. „Þetta mál sem kom upp í síðustu viku er bara eitt og nefna má umræðuna um blóðmerahald á síðasta ári. Allt snertir þetta ímynd starfandi bænda, hestamanna og raunar miklu fleiri. Hvar eru hagsmunasamtök bænda þegar svona kemur upp,“ spyr Sigrún. „Það er staðreynd að einungis örlítið hlutfall bænda er ekki með allt á hreinu þegar kemur að fóðrun, umhirðu og aðbúnaði dýranna. Mál af þessu toga leita hins vegar gjarnan í fjölmiðla og það svertir okkar orðspor. Þess vegna taldi ég rétt að nefndin í landbúnaðarhéraði eins og Borgarbyggð er, kallaði til fundar þá sem svarað geta spurningum um málið,“ segir Sigrún. Fundur nefndarinnar hófst nú klukkan 13 og er lokaður.",
"innerBlocks": []
}