Fréttir

true

Þingmenn hittu sveitarstjórnarfólk í kjördæmaviku

Kjördæmaviku er nú að ljúka en hefð er fyrir því að alþingismenn heimsæki kjördæmi sín og taki samtal við íbúa. Einn slíkur fundur var fyrir fulltrúa sveitarfélaga síðastliðinn miðvikudag og fór hann fram í Borgarnesi. Þangað mættu fulltrúar allra sveitarfélaga á Vesturlandi auk landshlutasamtakanna. Sex af átta þingmönnum Norðvesturkjördæmis mættu á fundinn og áttu að…Lesa meira

true

Nýsköpunardagur Vesturlands er í dag

Frá klukkan 13 til 17 í dag verður Nýsköpunardagur Vesturlands haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Gleipnir og Nývest sem standa að þessu degi en markmið hans er að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Dagskráin hefst klukkan…Lesa meira

true

Nýtt fyrirkomulag rjúpnaveiða þýðir ólíkan fjölda veiðidaga eftir landshlutum

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur staðfest tillögu Umhverfisstofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða fyrir árið 2024. Tillögurnar voru unnar eftir nýju veiðistjórnunarkerfi sem tekið var upp með stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem ráðherra undirritaði í haust. Veiðidagar verða heilir og heimilt er að veiða frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan veiðitímabils á hverju svæði.…Lesa meira

true

Auglýsa starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli

Biskup Íslands hefur auglýst til umsóknar starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli í Borgarfirði. Umsóknarfrestur er til miðnættis 17. október og miðað við að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. Prestur hefur ekki haft búsetu í Reykholti frá því í sumar en sóknarprestarnir á Borg og í Stafholti leyst af í prestakallinu. Eins og fram kom…Lesa meira

true

Íslandsbanki búinn að leysa til sín fasteignir sem hýstu starfsemi Skagans 3X

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að Íslandsbanki er nú orðinn eigandi að öllum fasteignum sem áður hýstu starfsemi Skagans 3X við Krókalón á Akranesi. Fasteignafélagið Grenjar var þinglýstur eigandi húsanna en á þeim hvíldu veðskuldir upp á tæpa þrjá milljarða króna. Í kjölfar gjaldþrots Skagans 3X í byrjun júlí hefur Íslandsbanki nú…Lesa meira

true

Starfsfólk FSN fór í námsferð til Portúgals

Dagana 22. – 29. september sl. brugðu kennarar og starfsfólk í Fjölbrautaskóla Snæfellinga undir sig betri fætinum og héldu til Portúgals til að kynna sér starfshætti kollega þeirra þar. Nýttu þeir tækifærið þegar haustfrí og námsmatsdagar voru í skólanum svo ekki yrði rask á skólahaldi. Heimsóttir voru tveir skólar í Porto þar sem heimamenn héldu…Lesa meira

true

Umhverfismatsskýrsla fyrir Holtavörðulínu 1 lögð fram

Landsnet hefur lagt fram matsskýrslu vegna umhverfismats Holtavörðuheiðarlínu 1 og er skýrslan aðgengileg á Skipulagsgátt. Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina fram til 29. nóvember nk. Tímarammi er þannig að eftir það er gert ráð fyrir sjö vikna athugun Skipulagsstofnunar áður en álit verður gefið út. Landsnet áformar að reisa…Lesa meira

true

Ráfað um róluvelli á Akranesi – myndasyrpa

Blaðamaður Skessuhorns brá sér á rúntinn í vikunni sem leið og fór í rannsóknarferð. Að þessu sinni var erindið að skoða róluvelli sem má finna víða á Akranesi og sjá hvernig staðan væri á þeim. Þeir bera nafn sitt með rentu því það er alls staðar alla vega ein róla á þeim en kannski ekki…Lesa meira

true

Fjöliðjufólk fagnar fjörutíu ára afmæli

Fjöliðjan á Akranesi er 40 ára um þessar mundir. Haldið verður upp á daginn á morgun, föstudaginn 4. október. Starfsfólk var í dag í óða önn að undirbúa móttöku gesta, meðal annars að setja upp myndasýningu, taka til og gera klárt. Opið hús verður frá klukkan 13 til 15 á Smiðjuvöllum 28. Boðið verður upp…Lesa meira

true

Íbúum í Borgarnesi ráðlagt að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni

Verið er að kanna mögulega kólígerla í vatni frá Seleyri við Borgarfjörð. Borgarnes fær kalda vatnið frá þremur veitum og er Seleyrarveita ein af þeim. Vatnið frá Grábrók og Hafnarfjalli er gegnum lýst og ekkert sem bendir til gerlamengunar þaðan. Veitur ásamt Heilbrigðiseftirliti Vesturlands eru að taka fleiri sýni úr neysluvatninu til að greina það…Lesa meira