
Umhverfismatsskýrsla fyrir Holtavörðulínu 1 lögð fram
Landsnet hefur lagt fram matsskýrslu vegna umhverfismats Holtavörðuheiðarlínu 1 og er skýrslan aðgengileg á Skipulagsgátt. Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina fram til 29. nóvember nk. Tímarammi er þannig að eftir það er gert ráð fyrir sjö vikna athugun Skipulagsstofnunar áður en álit verður gefið út. Landsnet áformar að reisa allt að 91 km langa 220 kV raflínu. Línan mun koma til með að liggja frá tengivirkinu á Klafastöðum í Hvalfjarðarsveit að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði. Á korti á vef Landsnets má m.a. sjá fyrirhugaða lagnaleið og fjölda ljósmynda sem teknar eru á lagnaleiðinni og sýna með og án nýrra byggðalínu. Holtavörðuheiðarlína 1 er matskyld framkvæmd og í umhverfismatinu lagði Landsnet fram 12 valkosti að fyrirhugaðri línuleið og í umhverfismatsskýrslunni er lagt mat á áhrif valkosta á þætti er snerta umhverfi, samfélag, öryggi og hagkvæmni. Aðal valkostur samanstendur af valkostum er fylgja Vatnshamralínu 1 og Hrútatungulínu 1 auk 5 valkosta er víkja aðeins frá þeirri leið.