
Hjálmaklettur í Borgarnesi.
Nýsköpunardagur Vesturlands er í dag
Frá klukkan 13 til 17 í dag verður Nýsköpunardagur Vesturlands haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Gleipnir og Nývest sem standa að þessu degi en markmið hans er að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu.