Prestsbústaður er í Reykholti og þar er jafnframt starfsaðstaða sóknarprests. Ljósm. mm

Auglýsa starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli

Biskup Íslands hefur auglýst til umsóknar starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli í Borgarfirði. Umsóknarfrestur er til miðnættis 17. október og miðað við að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. Prestur hefur ekki haft búsetu í Reykholti frá því í sumar en sóknarprestarnir á Borg og í Stafholti leyst af í prestakallinu. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns snemma í ágúst er unnið við lagfæringar á prestsbústaðnum í Reykholti en gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í tæka tíð til að nýr prestur geti flutt inn.

Auglýsa starf sóknarprests í Reykholtsprestakalli - Skessuhorn