
Nýtt fyrirkomulag rjúpnaveiða þýðir ólíkan fjölda veiðidaga eftir landshlutum
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur staðfest tillögu Umhverfisstofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða fyrir árið 2024. Tillögurnar voru unnar eftir nýju veiðistjórnunarkerfi sem tekið var upp með stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem ráðherra undirritaði í haust. Veiðidagar verða heilir og heimilt er að veiða frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan veiðitímabils á hverju svæði. Landinu er skipt upp í sex mismunandi svæði og ný stofnlíkön hafa reiknað út ákjósanlega lengd tímabils á hverju svæði fyrir sig. Veiðitímabil verða því misjafnlega löng. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða í 20 daga á tímabilinu frá 25. október til 19. nóvember. Á Vestfjörðum og Austfjörðum verður veiðitímabilið lengra en annarsstaðar, eða 25 dagar á Vestfjörðum og 43 dagar á Austfjörðum þar sem tímabilinu lýkur 22. desember.