
Fjöliðjufólk fagnar fjörutíu ára afmæli
Fjöliðjan á Akranesi er 40 ára um þessar mundir. Haldið verður upp á daginn á morgun, föstudaginn 4. október. Starfsfólk var í dag í óða önn að undirbúa móttöku gesta, meðal annars að setja upp myndasýningu, taka til og gera klárt. Opið hús verður frá klukkan 13 til 15 á Smiðjuvöllum 28. Boðið verður upp á kaffi og kökur, myndasýningu og kynningu á starfsemi Fjöliðjunnar. Allir eru velkomnir.