Íslandsbanki er nú orðinn eigandi fasteignanna við Krókalón. Ljósm. mm

Íslandsbanki búinn að leysa til sín fasteignir sem hýstu starfsemi Skagans 3X

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að Íslandsbanki er nú orðinn eigandi að öllum fasteignum sem áður hýstu starfsemi Skagans 3X við Krókalón á Akranesi. Fasteignafélagið Grenjar var þinglýstur eigandi húsanna en á þeim hvíldu veðskuldir upp á tæpa þrjá milljarða króna. Í kjölfar gjaldþrots Skagans 3X í byrjun júlí hefur Íslandsbanki nú gengið á veðið og leyst eignirnar til sín. Fram kemur í fréttinni að í afsali sem eigendur Grenja gáfu fyrir eignunum 30. september og þinglýst var síðastliðinn miðvikudag, segi að afsalið sé hluti af uppgjöri aðila vegna tryggingabréfs sem hvíldi á fasteignum og hefur Íslandsbanki nú gengið að veðum í eigu Grenja.

Íslandsbanki búinn að leysa til sín fasteignir sem hýstu starfsemi Skagans 3X - Skessuhorn