
Borgarnes. Ljósm. mm
Íbúum í Borgarnesi ráðlagt að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni
Verið er að kanna mögulega kólígerla í vatni frá Seleyri við Borgarfjörð. Borgarnes fær kalda vatnið frá þremur veitum og er Seleyrarveita ein af þeim. Vatnið frá Grábrók og Hafnarfjalli er gegnum lýst og ekkert sem bendir til gerlamengunar þaðan. Veitur ásamt Heilbrigðiseftirliti Vesturlands eru að taka fleiri sýni úr neysluvatninu til að greina það nánar. Fyrstu niðurstöður ættu að liggja fyrir síðar í dag en þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar.
Önnur svæði í Borgarbyggð fá ekki vatn frá Seleyri og þurfa ekki að grípa til ráðstafana. Hugsanlega gæti verið um galla í sýnatöku að ræða en Veitur vilja engu að síður hafa allan varann á og upplýsa.