
Ráfað um róluvelli á Akranesi – myndasyrpa
Blaðamaður Skessuhorns brá sér á rúntinn í vikunni sem leið og fór í rannsóknarferð. Að þessu sinni var erindið að skoða róluvelli sem má finna víða á Akranesi og sjá hvernig staðan væri á þeim. Þeir bera nafn sitt með rentu því það er alls staðar alla vega ein róla á þeim en kannski ekki mikið annað og ljóst að betur má ef duga skal í þessum efnum. Róluvellir eru mikið notaðir af foreldrum sem eru kannski með börnin sín heima og því er alltaf gott að geta haft þann möguleika að koma við á einhverjum róluvelli og dundað sér í smástund. Græn svæði eru mikilvæg og nauðsynleg í bæjarfélögum og tilvalin fyrir góða útiveru. Það væri því gaman ef hægt væri að gera smá skurk og marka stefnu í þessum málaflokki, bæta við nokkrum leiktækjum og búa til betri leikvelli á hinum fjölmörgu róluvöllum bæjarins.