Hópurinn í seinni skólaheimsókninni. Ljósmyndir: tfk

Starfsfólk FSN fór í námsferð til Portúgals

Dagana 22. – 29. september sl. brugðu kennarar og starfsfólk í Fjölbrautaskóla Snæfellinga undir sig betri fætinum og héldu til Portúgals til að kynna sér starfshætti kollega þeirra þar. Nýttu þeir tækifærið þegar haustfrí og námsmatsdagar voru í skólanum svo ekki yrði rask á skólahaldi. Heimsóttir voru tveir skólar í Porto þar sem heimamenn héldu góða kynningu en þar er til dæmis skólaskylda til átján ára aldurs. Námskerfið er nokkuð svipað og hér á Íslandi þó að kennarar hafi sammælst um að Íslendingar séu töluvert framar hvað tæknimál varðar.

Starfsfólk FSN fór í námsferð til Portúgals - Skessuhorn