Fréttir

true

Helstu seglar Vesturlands kynntir

Markaðsstofa Vesturlands, í samstarfi við birtingar- og ráðgjafafyrirtækið Datera, hefur gefið út skýrslu um leitaráhuga í Bandaríkjunum, Bretlandi og Íslandi á ferðatengdum leitarorðum fyrir Vesturland. Þar er farið yfir fjölda leita á Google, þar sem ferða- og upplýsingatengd leitarorð sem tengjast ferðamannastöðum á Vesturlandi voru tekin saman auk þess sem tekinn var fjöldi leita að…Lesa meira

true

Hnúfubak komið til bjargar í Steingrímsfirði

Björgunarsveitir frá Drangsnesi og Hólmavík losuðu á miðvikudaginn hnúfubak sem hafði fest sig í veiðarfærum í Steingrímsfirði. Tilkynning um hvalinn barst Matvælastofnun og var hvalurinn þá talinn dauður. Myndir úr dróna samtakanna Whale Wise staðfestu hins vegar að dýrið væri lifandi en samtökin hafa verið við hvalarannsóknir á svæðinu. Var þá ráðist í björgunaraðgerðir að…Lesa meira

true

Frestuðu ákvörðun um deiliskipulagsbreytingu á Grjóthálsi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var tekin fyrir tillaga frá meirihluta skipulags- og byggingarnefndar sem lagt hafði til að heimila að reist verði mælimastur á Grjóthálsi til rannsókna í aðdraganda þess að mögulega verði reist vindorkuver á hálsinum. Nefndin nýtti heimild í samþykktum um að vísa málinu til ákvörðunar sveitarstjórnar. Í bókun sem Sigrún…Lesa meira

true

Smíða tvær kennslustofur við Teigasel

Starfsmenn Trésmiðju Þráins E. Gíslasonar eru þessa dagana að byggja tvær lausar kennslustofur við leikskólann Teigasel á Akranesi. Um er að ræða smíði utan verkstaðar á tveimur nýjum kennslustofum ásamt anddyri og hvíldarrýmum. Húseiningar eru fluttar á verkstað og komið fyrir á steyptum sökkulveggjum. Kennslustofurnar eru smíðaðar sem sjálfstæð hús svo að hægt verði að…Lesa meira

true

Alþingi býður í heimsókn laugardaginn 14. september

Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardaginn 14. september. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju. Leiðsögn í Alþingishúsinu verður frá kl. 9 til 12 og aftur frá kl. 14 og 17 (bókað fyrirfram).…Lesa meira

true

Gestum í Guðlaugu fækkar en reksturinn batnar

Ef borið er saman tímabilið janúar til og með ágúst árin 2023 og 2024 hefur gestum í baðlaugina Guðlaugu á Akranesi fækkað. Gestir á þessu ári voru 9.860, eða 41 að meðaltali á dag. Árið 2023 var heildarfjöldi á sama tímabili 15.290, eða 62 á dag. Að sögn Daníels Sigurðssonar Glad, sem er forstöðumaður íþróttamála…Lesa meira

true

Komu í heimsókn frá Vestmanna í Færeyjum

Síðasta mánudag komu í heimsókn til Snæfellsbæjar bæjarstjóri og bæjarfulltrúar frá Vestmanna, vinabæ Snæfellsbæjar í Færeyjum.  Heimsóknir hafa verið reglulegar undanfarin ár, að undanskildum covid árunum, en þetta er fyrsta vinabæjarheimsóknin síðan fyrir faraldurinn. Fram kemur á vef Snæfellsbæjar að gestirnir fóru víða um bæjarfélagið með bæjarfulltrúum Snæfellsbæjar og fengu góða leiðsögn og góðan mat…Lesa meira

true

Ég er eins manns deild – segir gagnavörðurinn Benedikt

Benedikt Vilborgar og Jóhannesson ólst upp í Búðardal og býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Hörðudal í Dölum. Benedikt vinnur sem gagnavörður (e.DIT) og hefur fyrirtæki hans, DIT Iceland unnið að mörgum af stærstu þáttaröðum og kvikmyndum sem teknar hafa verið upp á Íslandi. Nýverið vann hann að þáttaröðinni True Detective, kvikmyndinni Heart of Stone…Lesa meira

true

Vantar svörun frá Snæfellsnesi við þjónustukönnun Byggðastofnunar

„Ertu stanslaust á ferðinni til að sækja þér nauðsynlega þjónustu? Hvernig er aðgengi og hvert er framboð þjónustu í þínu nærumhverfi?“ Þannig hljóma spurningar sem Byggðastofnun setur fram í þjónustukönnun sem nú er í gangi. Stofnunin hvetur íbúa landsins til að taka þátt í þessari þjónustukönnun þar sem spurt er um þjónustusókn íbúa á landsbyggðinni…Lesa meira

true

Bæjarstjórn staðfestir breytingu deiliskipulags Smiðjuvalla 12-22

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur staðfest tillögu skipulags- og umhverfisráðs að deiliskipulagsbreytingu Smiðjuvalla 12 – 22. Á auglýstum athugasemdatíma við tillöguna bárust fimm umsagnir en engar athugasemdir. Breytingin sameinar í eina lóð Smiðjuvelli 12-22. Stærð sameinaðrar lóðar er 19.800 fermetrar, eða rétt tæpir tveir hektarar. Afmarkast lóðin af Smiðjuvöllum að norðvestan og norðaustan, Þjóðbraut að suðaustan og…Lesa meira