
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. september sl. var lögð fram niðurstaða forvals fyrir alútboð á byggingu fjölnota íþróttahúss, stundum kallað knatthús, vestan við Skallagrímsvöll í Borgarnesi. Byggðarráð staðfesti að eftirtaldir umsækjendur taka þátt í lokuðu alútboði vegna byggingarinnar: Alverk ehf., Eykt ehf., E.Sigurðsson ehf., Ístak hf. og Sjammi ehf. Samkvæmt vinnslutillögu verður heildarstærð fjölnota íþróttahússins…Lesa meira








