
Nýir stígar við Grensás teknir út. Á myndinni er hluti bæjarráðs og Samfélagsflokksins ásamt formanni Skógræktarfélagsins. Ljósm. stykkisholmur.is
Nýir göngustígar á skógræktarsvæðinu við Grensás
Mikill kraftur hefur verið í Skógræktarfélagi Stykkishólms undanfarið en nú í sumar hefur göngustígakerfi í Nýræktinni vaxið mikið. Sveitarfélagið hefur síðastliðin ár unnið með félaginu að uppbyggingu á skógræktarsvæðinu við Grensás með það að markmiði að auka útivistarmöguleika í og við Stykkishólm.