Varðskýli var uppi á holtinu vestan ár, sem Bretar byggðu en þaðan gátu þeir fylgst með ferðum andstæðinganna í stríðinu. Úr byrginu lá sprengivír undir brúna til þess að gera Þjóðverjum skráveifu, hefta för þeirra, ef þeir næðu hingað til lands. Ljósm. mm

Síðsumarsferð Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum

Síðsumarsferð FaB var farin fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn.  Mæting var við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, en þar tóku á móti okkur Ragnheiður I Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og Rósa Björk Jónsdóttir kynningarfulltrúi skólans með kaffisopa og konfekti. Kynntu þær starfsemi skólans í máli og myndum auk þess sem við röltum um skólabygginguna og tókum tali kennara og nemendur. Þessu næst var haldið í Ullar- og Búvélasafnið þar sem þátttakendur gengu um og skoðuðu vörurúrval ullarvöru og fræddust um búvélar fyrri tíma.

Síðsumarsferð Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum - Skessuhorn