
Gunnar Jónsson safnstjóri og eigandi Hérumbil safnsins í Brákarey. Ljósmyndir: mm
Hérumbil safn Gunna Jóns enduropnað og er nú í Brákarey – myndasyrpa
Nú í sumar var Hérumbil safn Gunna Jóns enduropnað í Borgarnesi. Safnkosturinn hefur verið í geymslu frá árinu 2019 þegar Gunnar seldi húsnæðið sem safnið var upphaflega í, en það var bakatil í gömlu símstöðinni við Borgarbraut 12. Nú hefur Gunnar leigt bil í fyrrum fjárréttinni í Brákarey og komið safnkostinum þar haganlega fyrir í hillum og á veggjum. Safnið er nú opið um helgar frá klukkan 13 til 16 en fyrir hópa utan þess tíma ef pantað er. Aðgangseyrir er þúsund krónur. Gengið er inn á safnið vestantil á húsinu, á móts við gamla vigtarhúsið sem þar stendur. Blaðamaður Skessuhorns kíkti fyrir helgi í heimsókn til Gunnars Jónssonar, smellti nokkrum myndum og ræddi við safnstjórann.