
Sundlaugin í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/ tfk
Lengri opnunartími og rennibraut möguleg eftir að varmadælurnar koma
Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar Grundarfjarðar 5. september sl. var sagt frá því stóra verkefni sem „orkuskiptin“ eru, en stefnt er að því að hætta að kynda skóla og íþróttamannvirki bæjarins með olíu og fara yfir í varmadæluorku síðar í haust. Orkuskiptin eru stórt verkefni sem unnið hefur verið að síðan 2022 en undirbúning má rekja lengra aftur í tímann. Eftir árangursríka borun reyndist mögulegt að nýta orkuna sem fannst með aðstoð varmadæla.