Fréttir

true

Anna Guðrún skreytti mest og best

Anna Guðrún Guðnadóttir, íbúi á Hagamel 13 í Hvalfjarðarsveit, sigraði í skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2024. Voru henni í síðustu viku afhent vegleg verðlaun, frá Hótel Vesturlandi, af Birki Snæ Guðlaugssyni formanni menningar- og markaðsnefndar. Þemað í ár var rauður og hvítur og var Hagamelur 13 vel skreyttur í þessum litum.Lesa meira

true

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur ritað undir stjórnunar- og verndaráætlun fyrir íslensku rjúpuna. Felur það í sér nýtt kerfi veiðistjórnunar þar sem landinu verður skipt í sex hluta og veiðistjórnunin gerð svæðisbundin. Einnig hafa verið þróuð ný stofnlíkön sem munu reikna út ákjósanlega lengd veiðitímabils á hverju svæði. Þetta er í fyrsta skipti sem slík…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Klakkur komin með nýjan bíl

Í síðustu viku fékk Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði afhentan nýjan Toyota Land Cruiser 150 bíl til notkunar. Bíllinn er árgerð 2024 og leysir af hólmi 24 ára gamlan Nissan Patrol bíl sem var á 38 tommu dekkjum. Bílnum var breytt af Arctic Trucks og kemur fullbúinn og tilbúinn til notkunar. Bíllinn er á 40 tommu…Lesa meira

true

Evrópurútan kemur við á Akranesi á morgun, mánudag

Í tilefni 30 ára afmælis samnings um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun Evrópurúta RANNÍS fara hringinn um landið í september þar sem athygli verður vakin á árangri Evrópuverkefna í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi. Á morgun, mánudaginn 16. september kl. 10-12, verður viðkomustaðurinn Breið þróunarfélag á Akranesi og eru allir velkomnir. Clara Ganslandt, sendiherra…Lesa meira

true

Gjaldþrot Skagans 3X var ríflega 13 milljarðar króna

Kröfur í þrotabú Skagans 3X á Akranesi nema 13,2 milljörðum króna. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær en blaðið hafði aflað sér kröfuskrár frá Helga Jóhannessyni skiptastjóra í búið, en hún var send kröfuhöfum á föstudaginn. Frestur til að lýsa kröfum í þrotabúið rann út mánudaginn 9. september. Eins og kunnugt er var óskað gjaldrotaskipta…Lesa meira

true

Úr sarpi: Notalegt að búa í samfélagi sem maður þekkir vel

Rætt við Guðrúnu Jónsdóttir í Borgarnesi árið 2012 Guðrún Jónsdóttir er mörgum kunn á Vesturlandi en hún hefur búið í Borgarnesi undanfarin 25 ár og á þeim tíma látið mikið að sér kveða í samfélaginu á ýmsum sviðum. Hún hefur til dæmis starfað við markaðs- og kynningarmál, fjölmiðlun, menningarmál og einnig ferðaþjónustu. Störf hennar hafa…Lesa meira

true

Úr sarpi: Flest orkar tvímælis sem gert er

Viðtal við Theodór Þórðarson yfirlögregluþjón, Borgnesing og lífskúnstner úr Skessuhorni frá árinu 2007 Í Borgarnesi býr maður sem víða hefur lagt lið í gegnum tíðina, bæði starfs sín vegna og áhuga á málefnum. Lögð hefur verið gjörf hönd á margt sem ekki endilega hefur verið borið á torg. Hann hrífst af ungmennafélagsandanum þar sem samtakamáttur…Lesa meira

true

Fjölmenni skemmti sér á árlegu Sverrismóti – Myndasyrpa

Margt var um manninn á Hvanneyri á sunnudaginn en þá fór fram Sverrismót í knattspyrnu. Mótið er árlegt, haldið af Ungmennafélaginu Íslendingi, til minningar um Sverri Heiðar Júlíusson íþrótta- og æskulýðsleiðtoga á Hvanneyri. Mótið var fyrst sett á laggirnar árið 2009 og hefur síðan fest sig í sessi að frátöldu einu ári. Ungir sem aldnir…Lesa meira

true

Að hlaupa til ömmu og til baka var upphafið

Hinn fimmtán ára hlaupari, Sindri Karl Sigurjónsson, er ættaður frá Rauðanesi á Mýrum, sonur Halldóru Jónasdóttur og Sigurjóns Svavarssonar. Sindri Karl hafði frá unga aldri æft knattspyrnu en tók upp á því að byrja að hlaupa til ömmu sinnar á næsta bæ og til baka, til að ná sér í betra hlaupaform vegna knattspyrnunnar. Blaðamaður…Lesa meira

true

Leggja til stórfelldar breytingar á Jaðarsbakkasvæðinu

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var fjallað um næstu skref í verkefninu skipulag Jaðarsbakkasvæðis. Ráðið bókaði eftirfarandi niðurstöðu um næstu skref í skipulagsferlinu: „Lagt er til að aðalstúku verði snúið samsíða Akraneshöll og samhliða því verði aðalvelli knattspyrnunnar snúið. Lagt er til að fella starfshóp um Jaðarsbakka niður að svo stöddu og…Lesa meira