Þessi rjúpnaungi komst á legg í Borgarfirði í sumar. Leitar hann gjarnan skjóls við og undir sumarbústað þar sem myndin var tekin. Ljósm. mm

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hefur ritað undir stjórnunar- og verndaráætlun fyrir íslensku rjúpuna. Felur það í sér nýtt kerfi veiðistjórnunar þar sem landinu verður skipt í sex hluta og veiðistjórnunin gerð svæðisbundin. Einnig hafa verið þróuð ný stofnlíkön sem munu reikna út ákjósanlega lengd veiðitímabils á hverju svæði. Þetta er í fyrsta skipti sem slík áætlun er gefin út fyrir dýrastofn hér á landi.

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu - Skessuhorn